Ásta Möller (andsvar):
Virðulegi forseti. Komið hefur fram að minni hlutinn í allshn. hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann muni sitja hjá við meðferð þessa máls og það kemur mér spánskt fyrir sjónir því að nær allir þeir aðilar sem komu til nefndarinnar voru á þeirri skoðun að með þessu frv. væri töluverð réttarbót og mælt var með lögfestingu þess. Það voru ákveðin atriði frá Mannréttindasamtökunum sem við tókum til sérstakrar skoðunar varðandi framkvæmd á lögunum, þeim reglum sem yrðu settar í kjölfar laganna. En það kom ekki fram nein andstaða við frv. þannig að það kemur mér mjög spánskt fyrir sjónir að Samfylkingin, sem hefur talið sig vera málsvara útlendinga, sé ekki tilbúin til þess að afgreiða mál sem snýr að réttarbót fyrir útlendinga.