Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Mikil umræða hefur verið um fjarvinnsluverkefni sem hægt væri að flytja út á land. Jafnframt hefur verið stefnt að því að flytja stofnanir og verkefnissvið stofnana út á landsbyggðina.
Það miðar frekar hægt í þeim málum öllum saman. Vafasamt er að störfum fjölgi mikið á landsbyggðinni þó að einhver viðleitni sé í þá veru annað veifið eftir áðurnefndum markmiðum. Það segir lítið að hafa viljann í orði þegar stjórnvöld eru í raun að fækka störfum í þjónustu fyrir almenning á landsbyggðinni.
Það væri fróðlegt að fá upplýst, m.a. hjá hæstv. samgrh., hver sé viðmiðunin þegar leggja skal niður pósthús í byggðum. Er það íbúatalan eða er það eitthvert þjónustumagn sem þar fer í gegn?
Jafnframt er síðan í framkvæmd eyðibyggðastefna sem fylgt hefur frjálsa kvótabraskskerfinu þar sem störfum í sjávarbyggðunum fækkar í kjölfar kvótabraskskerfisins. Þar er á ferðinni algjör aðför að byggðum landsins.