Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Hér er fjallað um samvinnufélög og þau lagalegu skilyrði sem þeim eru sett. Tilgangur þessara frumvarpa er að gera þeim kleift að umbreyta sér í hlutafélög og hlutafélögum í samvinnufélög. Ég held að hugmyndin hér að baki sé góðra gjalda verð en ástæða þess að ég kveð mér hljóðs eru þau ummæli sem hér hafa fallið og þá einkum af hálfu hæstv. viðskrh.
Menn hafa gert að umtalsefni söguna, samvinnuhreyfinguna, og rifjað það upp að samvinnuhreyfingin og Framsfl. áttu samleið en ég held að þeim hugsjónamönnum sem þar komu að verki mundi mörgum bregða í brún að hlusta á talsmenn Framsfl. í umræðum og ekki aðeins í þessari umræðu í dag heldur einnig ef þeir skoðuðu verk þeirra á liðnum árum.
Framsfl. eða talsmenn hans hafa gagnrýnt okkur í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði fyrir að vera ekki nægilega jákvæð. Hæstv. ráðherra kvaðst hafa verið á fundi með einhverjum framsóknarmönnum sem hefðu fundið að því að við værum ekki nægilega jákvæð, við ættum að vera jákvæð eins og hæstv. ráðherrar Framsfl., væntanlega. Það er alveg rétt að þannig hafa framsóknarmenn hagað sér. Þegar þeir studdu sjálfstæðismenn fyrir fáeinum vikum við að lækka skattleysismörk og auka þannig skattbyrðar á lágtekjufólk, þá voru framsóknarmenn afskaplega jákvæðir. Þegar þeir rústuðu félagslega húsnæðiskerfið, þá voru þeir afskaplega jákvæðir. Þegar nú á að fara að gera tilraun með einkavæðingu á grunnskóla í Hafnarfirði, eru þeir líka jákvæðir. Að vísu er búið að finna að þessu við framsóknarmenn og þeir segjast vera á móti þessu í reynd en þeir ætla að leyfa þetta í Hafnarfirði svona í tilraunaskyni. Þá á að leyfa einkavæðingu á barnaskóla í Hafnarfirði til að geta verið jákvæðir viðhlæjendur Sjálfstfl.
Þegar til umræðu voru tekin mótmæli mörg hundruð einstaklinga á landsbyggðinni vegna lokunar pósthúsa, þá eiga menn líka að vera jákvæðir því að menn verða að skilja að allt er þetta gert til að styrkja byggðirnar, þetta er gert til að styrkja póstþjónustuna á landsbyggðinni. Það er væntanlega líka gert til að styrkja almannaþjónustuna á landsbyggðinni að loka flugvöllum og segja þar upp starfsmönnum, að draga úr fjarskiptaþjónustu. Það er væntanlega líka gert til þess að styrkja hinar dreifðu byggðir.
Mér finnst hér komið fram af svo ótrúlegum hroka gagnvart fólki sem er að setja fram mótmæli og lýsa yfir áhyggjum yfir því að almannaþjónusta í byggðarlagi þeirra sé skert. Ég ætla að vona, herra forseti, að forlögin sýni Framsfl. þá mildi að leiða hann fljótt til pólitískrar hvílu.