Flm. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla S. Einarssyni fyrir undirtektir og þau hvatningarorð sem hann lét hér falla og þykir miður að ég náði ekki að leita til hans um að vera á þessari tillögu. Sömuleiðis vil ég þakka öðrum sem hafa í einkasamtölum í þingsalnum tekið undir þann málflutning sem hér er uppi.
Ég styð hvert orð sem hv. þm. sagði áðan, en ég vil beina orðum mínum til ríkisstjórnarinnar og ég vil beina orðum mínum líka til hv. þm. í Reykjavík. Vita menn að Reykvíkingar eru hér með stórt fyrirtæki við höfnina sem heitir Stáltak? Vita menn að verkefnaskortur er fram undan hjá því fyrirtæki? Vita menn að þar eru starfsmenn og vinna þeirra og tekjur munu snarminnka og verkþekking mun hugsanlega hverfa héðan úr borginni eða úr landi? Kemur okkur ekkert við hvernig þessu fyrirtæki gengur? Kemur okkur ekkert við hvað verður um þessa starfsmenn?
Ég tek aðeins þetta dæmi vegna þess að ég er þingmaður Reykvíkinga en þetta á svo sannarlega við um aðra staði sem ég hef nefnt, Hafnarfjörð, Akranes, Akureyri og fleiri staði mætti nefna. Ég skora á ríkisstjórnina að taka þetta mál til afgreiðslu þegar þingið verður væntanlega búið að samþykkja tillöguna og vona að það verði íslenskum iðnaði til heilla.