Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvort hv. þm. var að gefa í skyn að ég hafi sagt að Pétur Jónasson hafi verið að senda Mývetningum tóninn eða einhverjir aðrir vísindamenn. Ég var að tala um forstöðumann Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn og þá menn sem þar réðu en ekki vísindamenn úti um heim. Ég veit ekki hvað þeir hafa sagt um þá hluti og er ekki að tala um það til að það liggi ljóst fyrir.
Í annan stað hygg ég að eftirtektarvert sé að hv. þm. tók ekki undir þá skoðun mína að eðlilegt væri að vísindamenn beinlínis ynnu í Mývatnssveit. Við getum horft til annarra verkefna, t.d. eru náttúrufræðingar og vísindamenn víða um land. Ég get með engu móti skilið af hverju það er svo erfitt að fá menn til að taka undir að það eigi að gefa vísindamönnum tækifæri til að vinna við náttúrufræðistöð við Mývatn, ef hún á annað borð er til, við Mývatn. Af hverju menn skella við því skollaeyrum og fara alltaf undan í flæmingi þegar að því kemur. Það styrkir byggðirnar að þar búi háskólamenntaðir menn, ég tala ekki um vísindamenn og það breikkar með mörgum hætti atvinnulífið. Við vitum aldrei hvað getur vaxið upp úr því ef góðviljaðir menn, sem blönduðu sér ekki í deilur og stæðu utan við þær og reyndu að skilja það sem fram fer í sveitarfélaginu, settust að og bæru ábyrgð á slíkri náttúrurannsóknastöð við Mývatn. Það er algerlega út í hött að líta á það sem náttúrulögmál að þeir þurfi að standa í deilum við heimamenn.