Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tók eftir því í ræðu hv. 1. þm. Vestf. að hann sagði að hugmyndirnar að sölu orkubúsins og lausn á vanda sveitarfélaganna á Vestfjörðum, sem því e.t.v. tengdust, hefðu komið frá Vestfirðingum sjálfum.
Ég vil spyrja hv. þm. að því hvort hann muni það ekki með mér að á fjölmennum fundi á Ísafirði hafi Eiríkur Finnur Greipsson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkubús Vestfjarða, lýst því mjög eindregið yfir að hann teldi sig hafa vissu fyrir því, hann gæti fært fyrir því rök, að hugmyndin um það að sveitarfélögin skyldu selja hlut sinn í orkubúinu hefði á sínum tíma komið frá ríkisvaldinu. Ég held að ég muni vel þessa fullyrðingu Eiríks Finns, fyrrverandi stjórnarformanns í Orkubúi Vestfjarða, og ég hef ekki heyrt hann draga hana til baka. Ég hef m.a.s. nýverið heyrt hann segja að hún væri rétt. (KHG: Hann rökstuddi hana ekki.)
Ég vil endurtaka þá spurningu hvort 1. þm. Vestf. hafi ekki einnig heyrt þessi orð og hvort hann telji þá að Eiríkur hafi farið með rangt mál.