Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Þriðjudaginn 06. mars 2001, kl. 18:30:17 (5269)

2001-03-06 18:30:17# 126. lþ. 82.7 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 126. lþ.

[18:30]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Því miður er þessi vandi fyrir hendi í sumum sveitarfélögum. Sem betur fer er þetta ekki stórt vandamál nema í tiltölulega fáum sveitarfélögum. Fari maður um landið þá eru auðar íbúðir ekki nein meginregla. Þær eru á nokkrum stöðum og margar á örfáum stöðum en það er hins vegar ekki meginvandinn alls staðar.