Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Það var þekkt orðtak sem var oft notað að menn hefndu þess í héraði sem hallaðist á Alþingi. Nú er þessu öllu saman snúið við. Nú eru menn að hefna þess á Alþingi sem hallaðist í héraði. Þeir eru í einhverjum vandamálum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, kratarnir, Samfylkingin. Fyrst þeir eru í vandræðum með það þar, þá drífa þeir það hingað inn á sali þingsins hvað eftir annað, þessar bæjarstjórnarumræður sínar í Hafnarfirði. Þeir segjast ekki fá að ræða þetta lýðræðislega. Það er búin að vera utandagskrárumræða með menntmrh. Það eru frumvörp á ferðinni, það eru fyrirspurnir á ferðinni. Frv. ganga til nefndarinnar. Þar getur nefndin velt þessu bæjarstjórnarmáli í Hafnarfirði fyrir sér fram og til baka og reynt að hefna þess á Alþingi sem hallaðist í héraði þó að það sé mikil nýlunda.