Katrín Fjeldsted:
Herra forseti. Þetta var þörf fyrirspurn. Fram kom í máli ráðherra að það er heilmikið magn af spilliefnum hér á landi. En það gildir að hið fornkveðna, að endurnýta, endurvinna og nota minna, verður að vera okkar leiðarljós í meðferð alls úrgangs. Spilliefnin leynast svo víða, þau leynast líka á heimilunum. Hér hefur verið farið yfir olíuúrgang og rætt um kerbrot, en við verðum líka að muna eftir því að spilliefni eru á heimilinum, rafhlöðurnar voru gott dæmi um það, málning og terpentína, ótal hlutir, hversdagslegir hlutir, sem við þurfum öll að gæta að að flokka. Við þurfum að endurnýta, endurvinna og nota minna.