Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Í máli hæstv. fjmrh. er að finna þverstæður. Fyrst segir hæstv. ráðherra að þetta valdi vonbrigðum en síðan segir hann að allt sé í stakasta lagi. Hann segir að í reynd hafi ekkert gerst nema það að nokkrir milljarðar hafi bæst við viðskiptahallann.
Herra forseti. Viðskiptahallinn er orðinn 10% af landsframleiðslu og það þekkist hvergi á byggðu bóli nema í einu ríki öðru, í Portúgal, að viðskiptahallinn sé svona hátt hlutfall af landsframleiðslu. Það sem mér finnst skipta máli, herra forseti, er að hæstv. fjmrh. telur að ekkert þurfi að gera. Hann telur að allt sé í stakasta lagi. Þó er auðvitað alveg ljóst að sökum þessa mikla viðskiptahalla búum við við allt of háa vexti.
Ég spurði hæstv. fjmrh. og ég óska eftir að hann svari því: Telur hann að viðskiptahallinn komi í veg fyrir að það sé hægt að lækka vexti? Ég spyr hann líka: Er hann virkilega þeirrar skoðunar að þetta sé góðkynja viðskiptahalli?