Stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja

Mánudaginn 12. mars 2001, kl. 17:42:46 (5536)

2001-03-12 17:42:46# 126. lþ. 86.16 fundur 520. mál: #A stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja# frv. 10/2001, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 126. lþ.

[17:42]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Reyndar er hv. þm. að tala um skattamál sem hann ætti frekar að ræða við kollega sinn, hæstv. fjmrh. Ég hef margoft látið það koma fram að á vegum hæstv. fjmrh. starfar nefnd sem er einmitt að vinna að því að gera lagaumhverfið einfaldara og skilvirkara. Það held ég að hljóti að þjóna nákvæmlega þeim sjónarmiðum sem hv. þm. er að tala fyrir. Nú verður hann bara að hafa örlitla biðlund.