Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem er um margt athyglisverð og hefur sem betur fer verið á þeim nótum eins og ég hef upplifað hana í höfuðborginni að í raun og veru viðurkenna allir mikilvægi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni og eiga mjög erfitt með að rökstyðja andstöðu sína við hann, þeir sem á annað borð lýsa andstöðu við Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýrinni. Ég held að því meiri umræða sem verður um þetta, þeim mun betur kemur í ljós hversu mikla þýðingu völlurinn hefur.
Hér töluðu tveir þingmenn um þvergirðingshátt og annar hv. þm. um hótanir. Ég kann satt að segja illa við slíkan málflutning og tal um hótanir af hálfu samgrh. sem sinnir því hlutverki sínu að gera tillögur og færa fram tillögur um framkvæmdir sem Alþingi hefur ákveðið að leggja í. Í því felast væntanlega hótanir mínar að mati hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur að framfylgja samþykkt Alþingis einarðlega og ég er tilbúinn til þess að halda því áfram.
Niðurstaða mín af umræðunni er sú að við eigum að taka höndum saman á þeim nótum sem ég hef lagt fram sem eru tillögur um að ná sátt við íbúa höfuðborgarinnar um nýtt og endurskipulagt flugvallarsvæði þar sem við tökum tillit til óska borgarbúa um meira rými og umfram allt betra umhverfi og betri Reykjavíkurflugvöll fyrir þá sem þurfa að nota hann.