Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Pétur Blöndal talaði um að sala á báðum bönkunum í einu þyrfti ekki að hafa svo mikil áhrif á fjármagnsmarkaðinn eins og hér hefur komið fram hjá öðrum hv. þm. Í umsögn Seðlabankans um frv. er reyndar sagt um áhrif þess að fara þurfi varlega gagnvart ungum fjármagnsmarkaði í mikilli þróun. Hv. þm. nefndi jafnframt að líklegir kaupendur gætu verið lífeyrissjóðirnir sem hefðu afar lítið aðhald eigenda sinna. Lífeyrissjóðirnir hafa hins vegar t.d. verið stórir kaupendur að húsbréfum. Telur hv. þm. að þar sem lífeyrissjóðirnir eru líklegir kaupendur þá gætu afföll af húsbréfum aukist verulega og þetta hefði veruleg áhrif á skuldastöðu heimilanna, þ.e. vegna húsbréfa og húsnæðiskaupa?
Hv. þm. nefndi vaðmálskommúnisma en allir vita að hér hefur orðið til nýr kommúnistaflokkur. Það er Sjálfstfl. hinn nýi. Hvert er álit hans á stjórnarfyrirkomulaginu, t.d. í Byggðastofnun og þeirri helmingaskiptareglu við úthlutun á bankastjóraembættum milli flokkanna sem fara með völd?