Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Hér komu sannast sagna forvitnileg sjónarmið fram hjá hv. þm. Ég velti fyrir mér hvort þessi sjónarmið nái inn í raðir þingflokks sjálfstæðismanna. Einnig velti ég því fyrir mér hvort þetta frv. sé sett fram í andstöðu við alla eftirlitsskylda aðila.
Ég er svo sannarlega sammála því sjónarmiði hv. þm. að vissulega sé efamál hvort það að staðnæmast við 10% hlut, ef menn á annað borð eru sammála um að setja þessa girðingu, sé rétta viðmiðunin, hvort það sé virkur eignarhluti og hvort ekki ætti að fara neðar með þetta prósentuhlutfall. Dæmið sem hv. þm. setti fram, um að virkur eignarhluti geti vissulega verið mun lægri en 10% ef aðrir eignarhlutar eru mjög smáir, er alveg rétt. Ég spyr hann hvort, ef á annað borð á að setja slíka girðingu, ekki væri þá rétt að fara neðar með þessi mörk til að þau virki eins og hæstv. ráðherra ætlar.
Ég vil líka gjarnan fá fram sjónarmið hv. þm., af því að ég veit ekki alveg hvort það er bara fyrirvari hjá honum eða hvort hann er í andstöðu við þetta frv., varðandi það hvort hið sama gildi ekki um hitt frv. ráðherrans eftir að hún hefur lýst því yfir að verja eigi andvirði bankans að verulegu leyti til Byggðastofnunar og búa til nýjan ríkisbanka. Það er algerlega í andstöðu við það sem bæði Seðlabankinn og Þjóðhagsstofnun hafa sett fram. Stöndum við frammi fyrir því að eftir yfirlýsingu ráðherrans gangi bæði þetta frv. og frv. sem við ræddum fyrr í dag gegn sjónarmiðum hv. þm. sem einna best hefur fylgst með þessari umræðu af þingmönnum Sjálfstfl.?