Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Bjarnasyni fyrir að hafa tekið þetta mál upp. Full ástæða er til þess að fylgst sé með þessu máli á hv. Alþingi. Ég verð hins vegar að segja að ég treysti yfirvöldum ágætlega fyrir því að standa vel að þessu máli. Mér finnst það hafa komið fram að undanförnu að það hafi allt verið gert sem mönnum hefur bókstaflega getað flogið í hug til þess að reyna að koma í veg fyrir að þessi smit berist hingað. Ég vona að það verði það sem menn halda áfram að gera, að bregðast við með öllum þeim ráðum sem menn sjá til þess að gera þessa hluti eins vel og mögulegt er. En það er sannarlega ekki sloppið fyrir hornið enn hvað þetta mál varðar því að nýjar og nýjar fréttir koma daglega af þessum sjúkdómum sem eru að koma upp allt í kring og því miður er áhættan fram undan örugglega mikil. Því er full ástæða til að menn hafi allan vara á sér.