Fyrirspyrjandi (Þórunn Sveinbjarnardóttir):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra svörin svo langt sem þau náðu, og taka undir með hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur um stjórnsýslulegt gildi þessarar rammaáætlunar því það er algjört grundvallaratriði. Eins og við vitum öll verða væntanlega kosningar hér vorið 2003, ef ekki fyrr, og þá má svo sem leggja afurðina í dóm kjósenda, þó ég ætli kannski ekki að fara að spá fyrir um það núna. Hins vegar er mjög mikilvægt í þessu máli og vegna þess hvernig staðan er núna árið 2001, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, að þá miðar þessu eðlilega og búið er að flýta vinnu vegna hugsanlegra stórra miðlunarlóna á hálendinu og þeirri vinnu á að skila fyrir árslok. Ég vil þó minna á í því sambandi að matsskýrslan vegna Kárahnjúkavirkjunar verður líklega tilbúin mjög bráðlega, á næstu vikum ætla ég. Búast má við því eða gera fastlega ráð fyrir því að hæstv. umhvrh. þurfi að fást við mjög erfiðar spurningar vegna þess umhverfismats núna í sumar og glíma við ýmis úrlausnarefni og hefur þá í raun ekki svörin sem hún þyrfti að hafa fyrr en í árslok. Það sýnir kannski betur en nokkuð annað að það er svolítið verið að vinna þessi mál hvert í sínu horni, náttúruverndaráætlun er hér, rammaáætlun er þar. Og e.t.v hefði verið betra að setja þetta allt undir eitt ráðuneyti og þá undir umhvrn., með fullri virðingu fyrir hæstv. iðnrh., því ég held að þar eigi þessi vinna einmitt heima.