Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Nú held ég að ísinn sé of þunnur fyrir jafnstóran mann og hæstv. félmrh. að fara að kenna mér í þessum efnum. Ég veit ekki betur en þær viðræðuáætlanir sem farið er eftir í tilviki opinberra starfsmanna séu í öllum aðalatriðum sambærilegar og hliðstæðar þeim sem eru í almennu vinnulöggjöfinni. Ég þykist muna það rétt þegar menn voru að ræða þetta á sínum tíma. (Gripið fram í.) Þó þetta séu tvenn aðskilin lög, það er mér alveg ljóst, þá er þetta samt í öllum aðalatriðum sambærilegt. Það samræmi var einmitt til umræðu á sínum tíma þegar verið var að lögfesta þessar breytingar, hvora í framhaldi af annarri eða meira og minna samhliða, þ.e. lögin um stéttarfélög og vinnudeilur og þau lög sem opinberir starfsmenn falla undir.