Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Ég gat þess áðan að ég mundi ekki svara þessu nánar fyrr en ég fengi færi á að kynna mér málið. Hins vegar er það þannig að Íslandspóstur hf. lýtur stjórn sem kosin er á aðalfundi. Því er svo háttað að ég hef skipað í stjórn fyrirtækisins m.a. í samráði við talsmenn eða forustumenn stjórnmálaflokkanna og ég veit ekki betur en einn ágætur fulltrúi í stjórn Íslandspósts sé í góðu sambandi við þingflokk Vinstri grænna þannig að allgóður samgangur er á milli fyrirtækisins og þess þingflokks.
Hins vegar er alveg ljóst að um starfsleyfi Íslandspósts hf. gilda ákveðnar reglur og á þær verður að sjálfsögðu að líta.