Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Vestf., Ragnheiður Hákonardóttir bæjarfulltrúi, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.``
Ragnheiður Hákonardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.