Réttur til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga

Þriðjudaginn 03. apríl 2001, kl. 18:24:47 (6297)

2001-04-03 18:24:47# 126. lþ. 104.34 fundur 484. mál: #A réttur til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga# (réttur til starfsheitis o.fl.) frv., GAK
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 126. lþ.

[18:24]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil bara koma hér til að lýsa stuðningi við þetta frv. og get alveg gefið þá yfirlýsingu hér að allur þingflokkur Frjálslynda flokksins mun styðja málið.