Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Kannski er rétt að taka það fram að verðtrygging hefur rutt sér til rúms í flestum ríkjum OECD á ríkistryggðum skuldabréfum, t.d. í Bandaríkjunum sem er kannski vagga fjármagnsmarkaðarins þannig að verðtryggingar eru ekki bannaðar í þessum löndum. Þær eru hins vegar notaðar í miklu minna mæli en hér á landi en við værum að ganga afskaplega langt og miklu lengra en önnur lönd ef við bönnuðum þetta form skuldbindinga. Ég tel að það sé ekki rétt. Það er hins vegar óumdeilt að betra væri ef fjármagnsmarkaðurinn þróaðist í þá átt hér á landi að minna væri um verðtryggingar. Það er ekkert því til fyrirstöðu og ég leyfi mér að trúa því að það muni verða. Þessar breytingar á lögunum eru þess efnis að mínu mati að þær opna fyrir það í meira mæli en áður var. En við verðum að sjá til hvernig þessi þróun er en það væri rangt af okkur að banna eitthvað hér á landi sem er þó heimilt í öðrum löndum, jafnvel þótt það sé notað þar í miklu minna mæli.