Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég get tekið undir að það er afskaplega há raunávöxtun og ég held að það geti nú ekkert staðið undir því til lengdar, a.m.k. ekki eðlileg starfsemi í landinu þannig að það er að sjálfsögðu mikilvægt að færa það til betri vegar.
Út af því sem hv. þm. sagði um reglur í Danmörku verð ég að játa að ég þekki ekki til þeirra reglna. En mér finnst sjálfsagt að fara yfir það og skoða það þó að ég sé þeirrar skoðunar að það eigi ekki heima í þessum lögum. En það á heima í þeim reglum sem gilda um samskipti ríkisvalds og sveitarfélaga við þegna landsins. Í því ljósi er sjálfsagt að taka það til athugunar. Það er þá hægt að gera það í þeirri hv. nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar.