Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég mæli fyrir litlu frv. um breyting á tollalögum nr. 55/1987, með síðari breytingum.
Með frv. þessu er lagt til að fátækustu þróunarríki heims samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna fái tollfríðindi á framleiðslu sína á sama hátt og kveðið er á í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Aðdraganda þessara breytinga má rekja til þess að af hálfu Íslands var í maí 2000 gefin út yfirlýsing á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, um að Ísland mundi veita fátækustu þróunarríkjum heims betri aðgang að markaði sínum með einhliða tollalækkunum. Mörg af efnaðri ríkjum heimsins hafa gert slíkt hið sama í samræmi við samkomulag þar um innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, svokallað GSP-kerfi sem á ensku heitir General System of Preferences.
Meðal þeirra ríkja sem þegar hafa veitt fátækustu ríkjunum tollafríðindi eru t.d. ríki Evrópusambandsins, Noregur, Sviss og Ástralía. Í dag eru 48 ríki skilgreind sem fátækustu ríki heims og eru þau talin upp í greinargerð með frv.
Í frv. er af hagkvæmnisástæðum gert ráð fyrir því að fjmrh. ákveði með reglugerð hvaða ríki skuli talin til fátækustu þróunarríkja heims þannig að ef ríki bætast á listann eða falla af honum verði ekki nauðsynlegt að breyta lögunum heldur nægi að breyta reglugerðinni í samræmi við það.
Miðað við innflutning frá þessum ríkjum á síðasta ári má gera ráð fyrir að árlegt tekjutap vegna þessarar ráðstöfunar geti numið 3 millj. kr. og sýnir það í raun hversu lítil viðskipti eiga sér stað milli Íslands og þessara 48 ríkja.
Tilefni þessa frv. til breytinga á tollalögum er að gera íslenska ríkinu kleift að standa við samninga sem gerðir hafa verið á alþjóðavettvangi.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál, en legg til, herra forseti, að því verði vísað til 2. umr. og hv. efh.- og viðskn.