Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Hv. þm. Lúðvík Bergvinsson dró fram fjölmörg atriði í máli sínu þar sem fram kemur að ýmislegt ber í milli annars vegar í frumskýrslu og hins vegar í lokaskýrslu rannsóknarnefndar flugslysa. Það vekur vissulega athygli að hæstv. ráðherra samgöngumála kýs að svara þessu engu jafnvel þótt þessi atriði gefi fullt tilefni til viðbragða af hálfu hæstv. samgrh.
Hæstv. ráðherra hefur hafnað þeirri beiðni að láta óvilhalla aðila yfirfara skýrslu nefndarinnar og í stað þess að axla ábyrgð sína sem samgrh. og æðsti maður málaflokksins vísar hann í lög um rannsókn flugslysa, vísar til sjálfstæðis rannsóknarnefndar flugslysa, áframsendir erindi til hennar og ef marka má fjölmiðlaumfjöllun um málið án þess að beina til nefndarinnar tilmælum um endurupptöku og án þess að telja sig hafa nokkuð með málið að gera.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra ber pólitíska ábyrgð á flugöryggismálum og hann getur ekki afsalað sér þeirri ábyrgð með því að vísa á sjálfstæða stjórnsýslunefnd. Ekki er verið að gera kröfu um að hæstv. ráðherra hlutist til um efnislega niðurstöðu rannsóknar en þegar tilefni gefast til þess á hann að sjálfsögðu í krafti embættis síns að láta sig málið varða. Hann getur t.d. beint tilmælum til nefndarinnar um endurupptöku og hann getur líka kallað eftir skýringum og krafist skýrslu frá nefndinni um þau atriði sem komið hafa fram og hafa vakið upp tortryggni.
Herra forseti. Það er heldur ekkert því til fyrirstöðu að hæstv. ráðherra fái utanaðkomandi óvilhalla erlenda aðila til að fara ofan í þessa rannsókn. Hæstv. ráðherra getur ekki vísað ábyrgð sinni sem ráðherra flugmála yfir á stjórnsýslunefnd. Það gengur ekki, herra forseti. Ábyrgð hans er til staðar. Hana verður hann að axla og gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að öllu sé til skila haldið í rannsókn flugslysa.