Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég er mjög ánægður með að fá tækifæri til að svara hv. þm. vegna þess að hér er ég að mæla fyrir frv. sem kveður skýrt á um það sem ekki hefur verið skýrt, að okkur sé heimilt að ganga til samninga, fela Vegagerðinni að gera þjónustusamninga við þau fyrirtæki sem sinna sérleyfi í fólksflutningum. Við erum að tala um fólksflutninga.
Hvernig gerum við það? Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir að þessar sérleyfisleiðir verði boðnar út og aðilar keppi um að fá þá þjónustu í sínar hendur. Við höfum gert ráð fyrir því í fjárlögum að veita þeim fyrirtækjum sérstaka styrki til þess að halda úti þjónustu við almenning. Það sem hv. þm. er að spyrja um er því afar skýrt. Ramminn er settur með þessu frv. þannig að mér sýnist að aldrei þessu vant uppfylli ég óskir hv. þm.