Barnalög

Föstudaginn 06. apríl 2001, kl. 16:41:20 (6603)

2001-04-06 16:41:20# 126. lþ. 108.34 fundur 314. mál: #A barnalög# (ráðgjöf í umgengnis- og forsjármálum) frv., Frsm. ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 126. lþ.

[16:41]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allshn. um frv. til laga um breyting á barnalögum, nr. 20/1992.

Við fengum umsagnir frá ýmsum aðilum eins og Barnaverndarstofu, Barnaheillum, áfengis- og vímuvarnaráði, Rauðakrosshúsinu, laganefnd LMFÍ og Félagi einstæðra foreldra o.fl. Einnig fengum við á fund til okkar Benedikt Bogason og Drífu Pálsdóttur frá dómsmrn. og Þórhildi Líndal, umboðsmann barna.

Í frv. er í fyrsta lagi lagt til að sýslumaður bjóði sérfræðiráðgjöf frá sérfræðingum í fjölskylduráðgjöf til lausnar ágreiningi um umgengni og forsjá barna. Barn, sem náð hefur 12 ára aldri, á samkvæmt frv. einnig rétt á slíkri ráðgjöf ef það þjónar hagsmunum þess. Í öðru lagi er lagt til að sýslumanni verði gert kleift að beita sektarúrræði til að knýja fram efndir vegna allra umgengnisúrskurða en ekki eingöngu þegar umgengnisforeldri á í hlut eins og nú er.

Nefndin telur mikilvægt að farsæl lausn finnist á svo viðkvæmum og vandmeðförnum málum sem ágreiningsmál foreldra um forsjá og umgengni barna eru og að sú sérfræðiráðgjöf sem gert er ráð fyrir í frv. muni stuðla að því. Nefndin leggur þó áherslu á að sýslumaður bindi sig ekki um of við aldursmarkið í frumvarpinu, 12 ár, heldur meti það sérstaklega í hverju tilviki fyrir sig hvort barni sé boðin ráðgjöf og það mat fari bæði eftir aldri og þroska barnsins. Hvetur nefndin til þess að þetta verði skoðað enn frekar við væntanlega heildarendurskoðun laganna. Þá er það mat nefndarinnar að eðlilegt sé að sýslumaður geti beitt sektarúrræðum til að knýja fram efndir á umgengnisúrskurðum hver svo sem á í hlut. Mælir nefndin því með því að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

,,Við 3. gr. Í stað orðsins ,,apríl`` komi: júní.``

Þetta nefndarálit var einróma samþykkt.