Þjóðhagsstofnun

Mánudaginn 23. apríl 2001, kl. 15:12:49 (6618)

2001-04-23 15:12:49# 126. lþ. 109.1 fundur 466#B Þjóðhagsstofnun# (óundirbúin fsp.), ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 126. lþ.

[15:12]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Hæstv. ráðherra sagði að það væri ekki endanlega búið að ákveða hvort stofnunin yrði lögð niður. Aftur á móti hefur áður komið fram að áform séu uppi um það hjá ráðherrum. Málið er í vinnslu. Hversu langan tíma telur hæstv. ráðherra að það taki að vinna málið þannig að niðurstaða fáist um hvort stofnunin verði lögð niður og hvenær mun það koma til kasta þingsins?