Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því í tilefni af svari hæstv. ráðherra að nefndin er búin að vera starfandi nokkuð lengi að því er ég best veit eða frá því í september, þá var hún sett á laggirnar. Hún hefur því haft drjúgan tíma til að taka á þessu máli. Þess vegna veldur það nokkrum vonbrigðum að lítið er að græða á fyrsta svari sem hæstv. nýr heilbrrh. gefur þinginu.
Ég vænti þess að nefndin hafi fengið einhverja verkáætlun eða erindisbréf frá hæstv. fyrrv. heilbrrh. þannig að það hefði a.m.k. verið hægt að svara því í hverju verk nefndarinnar var fólgið og t.d. hvort nefndin hafi haft verkáætlun frá hæstv. ráðherra að tillögurnar og aðgerðirnar ættu að ná til allra lífeyrisþega og hvort nefndin hafi haft einhvern ramma við að miða hve mikið fjármagn ætti að setja til þessara aðgerða. Ég vil vekja athygli á því að miklar vonir eru bundnar við starf nefndarinnar og þess vegna veldur svarið nokkrum vonbrigðum.