Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég hygg að það sé rétt hjá hæstv. utanrrh. að önnur mál gætu kannski vegið þyngra, a.m.k. er það mismunandi eftir stéttarfélögum hvernig þau vigta.
Hins vegar er alveg ljóst og hefur legið fyrir nokkuð lengi að menn horfa mjög til þessa frv. Það kom fram hér strax þegar ríkisstjórnin ákvað að fresta verkfalli sjómanna að frá því var greint að á fundi hagsmunaaðila með sjútvn. kom skýrt fram að menn litu til þess og mundu líta til þess varðandi framgang viðræðnanna hvernig þessu frv. reiddi af í þinginu. Það hefur síðan verið ítrekað aftur og aftur án þess að nokkur svör fáist.
Mér finnst, herra forseti, það eiginlega lágmarkskrafa gagnvart hæstv. ríkisstjórn, eftir að hún er búin að fresta löglega boðuðu verkfalli, taka af því alla pressu og í rauninni að gera samninga torveldari en ella hefði verið eftir því sem hagsmunaaðilar vilja meina, að hún reyni að liðka til með þeim hætti sem henni er þó fært, sem væri þá að greina frá því hvað menn eru tilbúnir til að gera varðandi þetta frv.
Herra forseti. Mér finnst það lýsa ákveðinni stífni að það skuli ekki vera gert. Satt að segja er það ekki til þess fallið að örva menn til sátta í þessari erfiðu deilu.
Mér fannst, herra forseti, sjálfsagt að spyrja hæstv. utanrrh. um þetta mál vegna þess að eins og fram kemur í tillögunni eða í greinargerð hennar, þá byggir það frv. til laga sem ég er hér að nefna á aðild okkar að þeim samningi sem hér er til umfjöllunar og þessi mál eru því mjög tengd.