Almenn hegningarlög

Þriðjudaginn 24. apríl 2001, kl. 15:16:02 (6710)

2001-04-24 15:16:02# 126. lþ. 110.18 fundur 313. mál: #A almenn hegningarlög# (fíkniefnabrot) frv. 32/2001, Frsm. meiri hluta ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 110. fundur, 126. lþ.

[15:16]

Frsm. meiri hluta allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta allshn. um frv. til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940.

Með frv. er lagt til að refsimörk 1. mgr. 173. gr. a almennra hegningarlaga verði hækkuð úr allt að 10 árum í allt að 12 ár. Þá er lagt til að refsimörk 2. mgr. 264. gr. sömu laga verði til samræmis hækkuð úr allt að 10 árum í allt að 12 ár.

Í ljósi þess að dómstólar hafa á síðustu árum nýtt refsimörk 173. gr. a nánast að fullu í alvarlegustu fíkniefnabrotum telur meiri hluti nefndarinnar nauðsynlegt að refsimörkin verði hækkuð og dómstólum þannig veitt frekara svigrúm til að ákveða þyngri refsingu ef til alvarlegri brota kemur. Jafnframt telur meiri hlutinn eðlilegt að refsimörk vegna peningaþvættis verði hækkuð til samræmis við hækkun refsimarka vegna fíkniefnabrota. Meiri hlutinn mælir því með að frv. verði samþykkt óbreytt.

Hjálmar Jónsson og Sverrir Hermannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta nefndarálit skrifa Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Ásta Möller, Katrín Fjeldsted, Jónína Bjartmarz og Ólafur Örn Haraldsson.