Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tel að í sjálfu sér væri það líka brot á þingræðisreglum að ætla að hv. Alþingi fari með rannsókn á slíkum málum. Að sjálfsögðu eru alþingismenn stjórnmálamenn alveg eins og ráðherrar og hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson hlýtur líka að átta sig á því.
Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að mikilvægt er að gæta stöðu réttarríkisins og ég skal fúslega viðurkenna að það að finna lausn á svona máli getur verið nokkuð flókið viðureignar, sérstaklega þegar litið er til lagalegrar hliðar þess. En ég ítreka að við erum að tala um afar sérstök mál þar sem ráðherra þarf auðvitað að fara mjög varlega í sínu mati. Litið var til annarra landa í þessu sambandi. Svona mál hafa komið upp t.d. í Danmörku, mjög alvarlegt mál þar sem fram komu ásakanir á hendur lögreglu, svokallað Nørrebro-mál. Þar var reyndar farin önnur leið. Sérstök nefnd var látin rannsaka það mál. Auðvitað er alltaf vandmeðfarið hvernig á að snúa sér í að finna lausn á þessum málum. En þegar öllu er á botninn hvolft held ég að mestu máli skipti að við sjáum til þess að réttlætinu sé fullnægt, að þarna sé opnaður möguleiki sem geti leitt í ljós ákveðna hluti, hver svo sem niðurstaðan verður. Ég ætla ekkert að segja til um það.