Almenn hegningarlög

Föstudaginn 27. apríl 2001, kl. 14:05:12 (7005)

2001-04-27 14:05:12# 126. lþ. 114.12 fundur 313. mál: #A almenn hegningarlög# (fíkniefnabrot) frv. 32/2001, dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 126. lþ.

[14:05]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil bara segja að ég tek undir orð hv. þm. Ég tel að þau renni einmitt frekari stoðum undir frv. sem við erum að ræða, þ.e. að ástæða sé til þess að útvíkka refsirammann, full ástæða til þess.