Hönnun

Föstudaginn 27. apríl 2001, kl. 15:20:52 (7023)

2001-04-27 15:20:52# 126. lþ. 114.14 fundur 505. mál: #A hönnun# (heildarlög) frv., Frsm. HjÁ
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 126. lþ.

[15:20]

Frsm. iðnn. (Hjálmar Árnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um hönnunarrétt ásamt brtt. frá hv. iðnn.

Nefndin hefur fjallað nokkuð ítarlega um málið og m.a. fengið á fund sinna góða gesti, Jón Ögmund Þormóðsson frá iðnrn. og Borghildi Erlingsdóttur frá Einkaleyfastofunni. Umsagnir voru að auki sendar til á annars tugs aðila en svör um málið bárust aðeins frá Landssambandi hugvitsmanna, Samtökum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar og Samtökum iðnaðarins.

Þetta er nokkuð óvenjulegt frv. að því leytinu til að það byggir í raun á alþjóðlegum samþykktum úr þremur áttum. Í fyrsta lagi á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um lögvernd hönnunar, nr. 98/71/EB, í annan stað á Genfarsamningnum frá 2. júlí 1999 um breytingu á Haag-samningnum um alþjóðlega skráningu hönnunar á sviði iðnaðar. Þá er í frv. gert ráð fyrir að íslensk löggjöf á þessu sviði verði samræmd sams konar löggjöf annars staðar á Norðurlöndum.

Segja má að við vinnslu málsins í hv. iðnn. hafi komið fram að Íslendingar hafa þegar innleitt efnislega nokkuð verulegan hluta af þeim alþjóðasamþykktum og lögum sem vísað er til. Þar af leiðandi eru breytingar á gildandi lögum ekki jafnmiklar og t.d. á Norðurlöndum þar sem er verið að vinna sambærilegt verk.

Helstu efnisbreytingar frv. eru þær að ekki er lengur gert ráð fyrir óskráðri hönnunarvernd og að unnt verður að sækja um alþjóðlega skráningu hönnunar hér á landi að því tilskildu að Ísland gerist aðili að áðurnefndum Genfarsamningi. Nefndin bendir á að þó svo að ákvæði núgildandi laga um óskráða hönnunarvernd falli brott samkvæmt frv. verði óskráð hugverk áfram varin samkvæmt ákvæðum höfundalaga og samkeppnislaga. Nefndin ítrekar jafnframt að frv. tekur eingöngu til vöru í efnislegum skilningi, þ.e. á ekki við hugverk eins og tölvubúnað enda eru slík verk vernduð með lögum um höfundarrétt.

Nefndin leggur til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu sem raktar eru á þskj.:

Í fyrsta lagi leggur nefndin til að 1. gr. frumvarpsins verði breytt þannig að talað verði um einkarétt á hönnun í stað einkaréttar til hönnunar. Sú breyting er málfarsleg en ekki efnisleg og er gerð í samráði við Íslenska málstöð.

Í öðru lagi leggur nefndin til orðalagsbreytingar, að bætt verði við orðunum ,,á sviði iðnaðar`` í 54. og 60. gr. en heiti samningsins misritaðist við vinnslu frumvarpsins. Nefndin leggur jafnframt til orðalagsbreytingu á 60. gr. frv., að í stað þess að tilgreina þar að iðnrh. skuli birta auglýsingu á grundvelli laganna verði látið nægja að tilgreina ,,ráðherra`` sem getur þá jafnt átt við utanrrn. sem iðnrn. og verði þá opnara eins og lagt er til.

Að lokum leggur nefndin til að heiti frv. verði breytt þannig að það verði að frv. til laga um hönnun í stað frv. til laga um hönnunarrétt. Þetta er til samræmis við heiti annarra laga á sviði hugverkaréttar. Svo mörg voru þau orð.

Undir nál. og brtt. rita allir fulltrúar hv. iðnn., þ.e., auk þess sem hér stendur, hv. þm. Guðjón Guðmundsson, Drífa Hjartardóttir, Svanfríður Jónasdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Pétur H. Blöndal, Ólafía Ingólfsdóttir, Árni Steinar Jóhannsson og Árni Ragnar Árnason.