Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breyting á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991, sbr. lög nr. 46/1996. Frv. er á þskj. 1026 og er 648. mál þingsins.
Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi hæstv. félmrh. um atvinnuréttindi útlendinga. Í gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 133/1994, og í gildandi lögum um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri er að finna ákvæði um atvinnurekstrarleyfi. Bæði frumvörpin gera ráð fyrir að sérstök atvinnurekstrarleyfi verði afnumin.
Ákvæði um atvinnurekstrarleyfi hafa verið í lögum um erlenda fjárfestingu frá setningu laganna árið 1991.
Í frumvarpi þessu er lagt til að ákvæði um atvinnurekstrarleyfi verði fellt brott. Ástæður eru fyrst og fremst notkunarleysi en lítið hefur reynt á ákvæði þetta og hefur það jafnframt valdið nokkrum vanda í framkvæmd þar sem lítið er um viðmiðunarreglur sem er hins vegar að finna þegar kemur að útgáfu atvinnuleyfa. Þannig veita atvinnurekstrarleyfi í þeirri mynd sem þau eru í dag enga frekari möguleika á eftirliti umfram það sem útgáfa atvinnu- og dvalarleyfa gerir.
Telja má víst að það sé til einföldunar á stjórnsýslu að fella niður sérstakt ákvæði um atvinnurekstrarleyfi þannig að ákvæði um atvinnuleyfi, auk reglna um dvalarleyfi, gildi með sama hætti um sjálfstæða atvinnurekendur og almenna launþega. Enn fremur er rétt að hafa í huga að í lögum um hlutafélög og einkahlutafélög er að finna reglur um rétt erlendra aðila til stofnunar hlutafélaga hér á landi en með þeim kröfum má segja að felist ákveðið eftirlit með stofnun slíks atvinnurekstrar. Niðurfelling atvinnurekstrarleyfa á auk þess ekki að hafa áhrif á eftirlit Útlendingaeftirlitsins þar sem erlendur aðili sem hyggst stofna til sjálfstæðs rekstrar verður eftir sem áður að uppfylla skilyrði laga um dvalarleyfi ásamt skilyrðum laga um atvinnuleyfi.
Með örfáum undantekningum gera innlend lög á sviði fjárfestinga- og atvinnurekstrar ráð fyrir því að erlendur aðili sem hefur fasta búsetu hér á landi skuli njóta sömu réttinda og innlendur aðili með fasta búsetu. Einnig er rétt að benda á að þróun tvíhliða og fjölþjóðlegra samninga á þessu sviði gengur í sömu átt. Hafa Íslendingar m.a. verið talsmenn þessa á alþjóðavettvangi. Það er í samræmi við þessar áherslur að erlendum aðilum verði veitt landskjararéttindi eins og afnám sérstaks atvinnurekstrarleyfis væri.
Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til hv. efh.- og viðskn. og 2. umr.