Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

Mánudaginn 30. apríl 2001, kl. 15:56:37 (7059)

2001-04-30 15:56:37# 126. lþ. 115.14 fundur 648. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (atvinnurekstrarleyfi) frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 126. lþ.

[15:56]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Auðvitað þurfa samningar að halda. Auðvitað þarf að fara yfir þetta mál í hv. nefnd sem hv. þm. kom inn á. En ég hef ekki skýr svör við þeim spurningum sem hann lagði fram því að ég tel að frv. kveði nánast ekki á um þær hættur sem hann sér fyrir sér.

En það er best að fullyrða ekkert og best að biðja hv. nefnd að fara yfir þetta og ég þakka fyrir ábendinguna.