Heimsókn forseta danska þingsins

Mánudaginn 30. apríl 2001, kl. 16:41:54 (7070)

2001-04-30 16:41:54# 126. lþ. 115.96 fundur 502#B heimsókn forseta danska þingsins#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 126. lþ.

[16:41]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti danska Þjóðþingsins, Ivar Hansen, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsetinn er staddur hér á landi í boði Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta danska Þjóðþingsins og fylgdarlið velkomið í Alþingishúsið og vænti þess að för þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli Alþingis og Þjóðþingsins.

Ég vil biðja hv. þm. að votta hinum dönsku gestum og dönsku þjóðinni vináttu og virðingu með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum].