Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir svarið. Það þurfti sannarlega ríkisafskipti. Fulltrúi eigandans, handhafi eina hlutabréfsins, fulltrúi ríkisins þurfti að beita sér á aðalfundi fyrirtækisins til þess að fá þá lækkun sem menn höfðu bent á varðandi það óréttlæti og misrétti sem var milli landsbyggðarfyrirtækja og höfuðborgarfyrirtækja á þessu sviði. Munurinn milli landsbyggðar og höfuðborgar var fleiri hundruð prósent á þessum tíma.
En það þurfti þessa beinu tilskipun eins og í Rússlandi í gamla daga til að koma þessu á. Áralöng barátta náði ekki fram að ganga fyrr en eftir þetta þó að reyndar hafi tekið nokkra mánuði í viðbót, eða hálft ár eða meira eftir þennan aðalfund, til þess að ná þessari lækkun.
En ég vek athygli á því, herra forseti, að verðlagning milli landsbyggðarfyrirtækja og höfuðborgarfyrirtækja á þessu sviði gagnvart gagnaflutningi og leigulínum er enn þá mjög landsbyggðinni í óhag.