Hjálmar Árnason (andsvar):
Herra forseti. Hversu lengi samkeppnin varir, því er auðvitað ekki hægt að svara. En ég vil enn og aftur vitna í fjarskiptalögin þar sem ráðherra er ætlað gífurlega mikið hlutverk. Ég vil líka vitna til þess sem hér hefur verið í umræðunni, laga sem fóru í gegnum þingið fyrir skömmu, um jöfnunargjald. Ég vil líka vitna til þess sem fram hefur komið um hlutverk Samkeppnisstofnunar og Fjarskiptastofnunar, þ.e. að fylgjast með. Ráðherra mun fylgjast með þessu og þá mun þingið væntanlega fylgjast með þessu. Jöfnunargjaldið og hlutverk Fjarskiptastofnunar og Samkeppnisstofnunar hljóta að gegna miklu hlutverki.
Ég deili hins vegar áhyggjum hv. þm. af þróun í fargjöldum í innanlandsflugi. Ég deili því með hv. þm. Þar tel ég hins vegar um öðruvísi aðstæður að ræða.