Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Virðulegur forseti. Nú líkar mér við forseta. Hv. þm. Halldór Blöndal tók upp þráðinn þar sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson skildi við hann, um hinn svifaseina Póst og síma. Mikið er gert úr því hversu stofnunin hafi verið svifasein og ósjálfstæð. Menn tala um að það hafi þvælst fyrir henni að þurfa að fá fjárfestingarramma sinn afgreiddan í fjárlögum o.s.frv.
Hér er verið að gera úlfalda úr mýflugu og notast við hin hefðbundnu rök gegn ríkisrekstri til að koma á hann óorði, veikja hann þannig að hann sé auðveldara fórnarlamb einkavæðingarinnar, sem er markmiðið. Markmiðið er ekki þessi málflutningur eða þessi ræðuhöld. Þau eru bara aðferðin til að ná hinu fram. Þetta er gamalkunnur leikur og ekki mjög stórmannlegur. Þetta beinist auðvitað öðrum þræði að starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins við þær aðstæður sem þeir sinntu verkum sínum.
Staðreyndin er sú að Póstur og sími var mjög sjálfstæð stofnun og ekki nema ákveðinn rammi sem kom inn í forsendur fjárlagafrv. hverju sinni. Ég kannast ekki við að Pósti og síma hafi verið sagt fyrir í einstökum verkefnum um fjárfestingar sínar eða annað því um líkt. Honum hefur þá verið stjórnað öðruvísi af öðrum samgrh. en samkvæmt því sem ég þekki til.
Varðandi samkeppnisþættina var búið að gera það sem gera þurfti, tryggja bókhaldslegan og fjárhagslegan aðskilnað einkaleyfisbundinnar starfsemi og samkeppnisstarfsemi. Hins vegar hefði auðvitað verið hægt að gera stofnunina sjálfstæða með ýmsum öðrum aðferðum.
Breyting í hlutafélag hefði verið sök sér ef menn hefðu ekki óttast það sem nú er komið á daginn, að hún væri fyrst og fremst aðdragandi einkavæðingar. Það voru uppi svardagar um að það stæði ekki til. Eigum við að rifja þá upp frá 1996, eitt hlutabréf, úr stáli þannig að menn sæju að það ætti ekki að selja út úr fyrirtækinu? Hvar eru þeir svardagar nú? Það stóð ekki til að standa við þá lengi. Nú er það allt að koma á daginn sem olli m.a. fyrirvörum manna við að samþykkja breytingu þessa fyrirtækis í hlutafélag.