Karl V. Matthíasson:
Herra forseti. Sú stétt manna á Íslandi sem hefur orðið fyrir hvað mestum skerðingum hvað varðar kjör og ýmsa aðra aðstöðu til lífsviðurværis er bændur. Ég held að öllum sé ljóst að engin stétt hefur þurft að leggja eins mikið á sig og bændastéttin.
Það sem ég vil vekja athygli á og segja í sambandi við þetta mál sem við erum að ræða, þjóðlendurnar, er að mikilvægt er að réttindi bænda til hlunninda og til að afla sér aukinna tekna með því t.d. að koma sér upp litlum virkjunum eða einhverju öðru því líku verði ekki skert.
Eignarrétturinn er sá réttur sem Íslendingar virða mjög vel og okkur ber að gæta þess í þessu máli að hann sé ekki fyrir borð borinn.