Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Rannsóknastöðin hefur aðsetur og er rekin á Skútustöðum við Mývatn. Í húsakynnum hennar í gamla prestsseturshúsinu á Skútustöðum fer fram fjölbreytt rannsóknarstarfsemi, einkum í vistfræði. Er hún í höndum sérfræðinga frá ýmsum rannsóknastofnunum og háskólum auk þess sem háskólanemar í náttúrufræði fá þjálfun þar. Einnig hafa kennaranemar frá Kennaraháskóla Íslands, framhaldsskólanemar frá Norður- og Austurlandi og grunnskólanemar í Skútustaðahreppi, Húsavík og Stórutjörnum fengið fræðslu og þjálfun í náttúrufræðum hjá stöðinni.
Rannsóknastöðin útvegar vísindamönnum frá innlendum og erlendum rannsóknastofnunum aðstöðu og er nokkur hluti rannsókna við stöðina í þeirra höndum. Hafa a.m.k. 11 framhaldsnemar skrifað meistara- og doktorsritgerðir um vistfræði Mývatns og núna eru fimm meistaranemar að vinna að rannsóknum á vatninu eða með slík verkefni í undirbúningi og auk þess tveir líffræðinemar sem vinna að verkefnum um uppeldisskilyrði lax og silungs í Laxá í Aðaldal. Þessir vísindamenn eru styrktir af sínum rannsóknastofnunum og háskólum og ber stöðin lítinn kostnað af starfi þeirra.
Rannsóknastöðin hefur staðið fyrir tveimur alþjóðlegum ráðstefnum í Mývatnssveit og næsta sunnudag verður haldin alþjóðleg ráðstefna á Skútustöðum um vötn á norðurslóðum en þó mest um Mývatn og þátttakendur verða þar um 60 manns.
Rannsóknir á vettvangi fara einkum fram um sumartímann enda er lífríkið að miklu leyti í dvala á veturna. Úrvinnsla gagna fer fram yfir vetrarmánuðina á ýmsum rannsóknastofnunum auk rannsóknastöðvarinnar, einkum við Háskóla Íslands þar sem hópur sérfræðinga á vegum háskólans starfar saman að úrvinnslunni og á Veiðimálastofnun. Samstarfssamningur er í gildi á milli þessara stofnana, eins milli rannsóknastöðvarinnar og Hólaskóla. Umhvrn. hefur ekki til vinnslu hugmyndir um breytingar á rekstri stöðvarinnar í Skútustaðahreppi.
Varðandi seinni fyrirspurnina, virðulegi forseti, er því til að svara að rannsóknastöðin hefur undanfarin ár haft einn fastan starfsmann, Árna Einarsson vatnalíffræðing og er hann jafnframt forstöðumaður. Vinnur hann að rannsóknum á fuglum, fiskum, átustofnum, vatnagróðri og kísilgúr. Hann er búsettur við Mývatn. Aðrir starfsmenn eru ráðnir tímabundið í sérstök verkefni, oftast nokkra mánuði í senn. Oftast eru það framhaldsnemar í náttúrufræðum en sem stendur stunda tveir meistaraprófsnemar í raunvísindum rannsóknir hjá stöðinni.