Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá allshn. á þskj. 1155, en þar segir m.a.:
Með frv. er lögð til breyting á almennum hegningarlögum vegna fyrirhugaðrar aðildar Íslands að samningi um öryggi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna, sem gerður var í New York 9. des. 1994, og mælir allshn. með því að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
Í stað ,,11`` í 1. gr. komi: 12.