Nefndarfundir á þingfundatíma

Miðvikudaginn 09. maí 2001, kl. 18:01:12 (7330)

2001-05-09 18:01:12# 126. lþ. 118.93 fundur 516#B nefndarfundir á þingfundatíma# (um fundarstjórn), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 126. lþ.

[18:01]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að núna kl. 19, eftir eina klukkustund, hefur verið boðað til fundar í menntmn. þingsins með ítarlegri dagskrá, fimm dagskrárliðir, gestir boðaðir á fund. Ég vil gjarnan fá upplýsingar um áform hæstv. forseta um fund þingsins í kvöld hvor kosturinn verði valinn að fresta þingfundi eða fresta fundi menntmn.