Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Það er hins vegar annað atriði sem hv. þm. vék að og það er um að félagslegar íbúðir verði settar á markað á því virði sem þær raunverulega eru. Ég verð að segja alveg eins og er að ég er þingmanninum nokkuð sammála um það að sá sem á skuldir, í þessu tilfelli ríkið, hlýtur að tapa og að eignir verða ekki seldar á meira virði en þær eru.