Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Ögmundur Jónasson) (andsvar):
Herra forseti. Þetta finnst mér bara vera hreinir útúrsnúningar. Ég var að skilgreina á hvern hátt ég teldi að stýra ætti þessum stofnunum pólitískt sem þjónustustofnunum fyrir landsmenn. En ég fékk náttúrlega engin svör fremur en fyrri daginn.
Mér finnst að pólitískar ákvarðanir varðandi bankana og fjármálakerfið eigi að ræða hér. Ég hefði t.d. áhuga á að vita hvort ríkisstjórnin hafi beint því til bankanna að hafa milligöngu um fjárfestingar í virkjanamálum núna, hvort einhverjar viðræður fari fram og hvort hæstv. ráðherra sé kunnugt um að slíkar viðræður fari fram. Ég hefði áhuga á að fá upplýsingar um slíkt. Slíkt á að vera uppi á borði, ekki niðri í skúffum eða bak við tjöld. Bak við þau tjöld hafa stjórnvöld getað skýlt sér í krafti hlutafélagalaga. Það er staðreynd. Vegna þess að oft er það svo að stjórnvöldum er í lófa lagið að reiða fram upplýsingar og miklu meiri upplýsingar en þau hafa verið reiðubúin að gera. Við höfðum dæmi um þetta um Landssímann á sínum tíma en í skjóli hlutafélagalaganna hefur Alþingi verið meinað um upplýsingar. Það er ekkert í hlutafélagalögunum sem bannar að upplýsingar séu reiddar fram. En í skjóli þeirra er hægt að koma sér hjá því að reiða fram upplýsingar. Og það er í þessu samhengi sem ég tala um að nýta sér lög til að komast hjá því að veita umbeðnar upplýsingar og það er ekkert óeðlilegt við þetta orðalag nema síður sé.
Ég ítreka það, herra forseti, að ég hef gert grein fyrir því með hvaða hætti ég tel að almannavaldið eigi að beita áhrifum sínum landsmönnum og atvinnulífi til hagsbóta.