Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Eins og fram hefur komið í þessari umræðu hefur einkavæðingarnefnd mikið hlutverk í sambandi við sölu bankanna og hún vinnur samkvæmt ákveðnum reglum. Ég held því að hv. þm. þurfi ekkert að skipa neitt fyrir um það við hverja er talað. Það er mál sem einkavæðingarnefnd er áreiðanlega fullfær um að meta eins og hefur verið gert fram að þessu.
Að sjálfsögðu er ég tilbúin að tala við starfsmenn bankanna hvenær sem er. En ég hefði talið eðlilegra að ekki kæmi beiðni um það í gegnum þingnefnd, heldur fengi ég (JóhS: Ráðherrann á að hafa frumkvæði að því.) bein skilaboð um það. En eins og hefur komið hér fram ... (Gripið fram í.)
(Forseti (GuðjG): Ekki samtal.)
Eins og komið hefur hér fram átti ég mjög góð samskipti við fulltrúa starfsmanna í tengslum við hugsanlega sameiningu bankanna og ég er tilbúin að taka þær viðræður upp hvenær sem er.