Breyting á IX. viðauka við EES-samninginn (fjármálaþjónusta)

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 10:28:38 (7473)

2001-05-11 10:28:38# 126. lþ. 120.14 fundur 639. mál: #A breyting á IX. viðauka við EES-samninginn (fjármálaþjónusta)# þál., Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[10:28]

Frsm. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um staðfestingu á ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja.

Á fundum nefndarinnar kom fram að tilskipunin fjallar eingöngu um að tryggja að tjónþoli geti snúið sér til aðila í heimalandi sínu með kröfu um bætur fyrir tjón sem ökutæki, sem vátryggt er og skráð í öðru aðildarríki, hefur valdið í öðru aðildarríki en því sem tjónþoli býr í. Tilskipunin fjallar hins vegar hvorki um þann efnislega rétt sem tjónþoli kann að eiga til bóta né um tjónauppgjörið sjálft og innihald þess.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.