Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá hv. allshn. um till. til þál. um heildarstefnumótun í málefnum barna og unglinga, á þskj. 1176.
Í tillögugreininni er ríkisstjórninni falið að undirbúa heildstæða og samræmda opinbera stefnu í málefnum barna og unglinga og í því skyni verði skipuð nefnd með aðild forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, umhverfisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þá er gert ráð fyrir fimm ára framkvæmdaáætlun í samráði við opinberar stofnanir og félagasamtök sem vinna að málefnum barna og unglinga.
Umsagnir sem nefndinni hafa borist um málið eru mjög jákvæðar. Nefndin telur að umfjöllun lokinni að nauðsynlegt sé að mótuð verði opinber stefna í málefnum barna og ungmenna þar sem slík stefna muni stuðla að auknum hag og velferð þeirra. Þá telur nefndin að heildarstefna þar að lútandi sé ein af forsendum þess að hægt verði að tryggja öllum börnum og ungmennum jafnan rétt auk þess sem hún muni tryggja enn frekar að hagsmuna þeirra verði gætt á öllum sviðum þjóðlífsins.
Hér er með öðrum orðum, herra forseti, verið að hreyfa við mjög merku og góðu máli að frumkvæði hv. þingmanna Jóhönnu Sigurðardóttur, Drífu Hjartardóttur, Guðjóns A. Kristjánssonar, Ólafs Arnar Haraldssonar, Rannveigar Guðmundsdóttur og Ögmundar Jónassonar.
Það er jafnframt mat nefndarinnar að mikilvægt sé að tryggja börnum og ungmennum heilbrigð skilyrði til uppvaxtar og þroska og stefnumótun af þessu tagi sé hluti af því. Þá sé rétt að benda á að tillagan er í samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tók gildi hér á landi 27. nóvember 1992.
Þá ítrekar nefndin nauðsyn þess að í fyrirhuguðu starfi verði tekið tillit til aðstæðna, þarfa og sjónarmiða barna og ungmenna. Með hliðsjón af fyrrgreindu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
Í stað ,,2001`` í 3. mgr. tillögugreinarinnar komi: 2002.