Vinnubrögð við fundarboðun

Laugardaginn 12. maí 2001, kl. 18:48:11 (7628)

2001-05-12 18:48:11# 126. lþ. 121.91 fundur 537#B vinnubrögð við fundarboðun# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 126. lþ.

[18:48]

Forseti (Halldór Blöndal):

Af þessu tilefni er rétt að taka fram að ég skýrði frá því í gær að ef ég sæi ástæðu til eða tilefni gæfist til þá yrði útbýtingarfundur í dag.