Vinnubrögð við fundarboð

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 10:03:40 (7642)

2001-05-14 10:03:40# 126. lþ. 122.91 fundur 540#B vinnubrögð við fundarboð# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[10:03]

Forseti (Halldór Blöndal):

Af þessu tilefni vil ég segja hv. þm. að þingflokksformönnum var sagt frá því á föstudag að hér gæti komið til útbýtingarfundar á laugardegi svo að hv. þm. átti að vera það kunnugt. Ef hann hefði kosið að vera mættur á þeim fundi hefði hann átt að haga ferðum sínum með öðrum hætti.

Í annan stað hlýt ég að vísa á bug öðru því sem hv. þm. sagði.